Klippir út minningar
Listakonan Arnfinna Björnsdóttir eða Abbý eins og við þekkjum hana opnar sýningu á klippimyndum sínum á Vinnustofu Abbýar að Aðalgötu 13, miðvikudaginn 20 maí kl. 15.00.
Abbý hefur undanfarin ár opnað sýningu á Vinnustofunni í kringum 20. maí og er dagsetningin engin tilviljun. Með því er hún að halda upp á afmæli eiginmanns síns Eysteins Aðalsteinssonar sem er þann 18. maí og afmæli tengdaföður síns heitins og Siglufjarðar sem eiga afmæli þann 20. maí.
Í ár ætlar Abbý að halda sýningu á klippimyndum þar sem hún sýnir okkur líflegar myndir frá síldarárunum. Ekki eru neinar frekari fyrirmyndir en hennar eigin upplifun og minningar frá síldarárunum sem hún klippir út og límir saman. Hún rissar fyrst upp myndirnar og tekur síðan til við að klippa út formin úr gömlum blöðum og setur saman á listilegan hátt. Mikil vinna og natni liggur á bakvið hverja mynd sem eru hreinustu listaverk.
Ekki er Abbý eingöngu að gera klippimyndir því hún málar, prjónar og gerir allskonar listaverk í höndunum sem eru síðan til sölu á Vinnustofu hennar.
Opið verður alla virka daga í sumar frá kl. 14.00 - 17.00
Abbý með brúðuna sem hún nefnir Lóu og er hún síldarstúlka. Þær eru góðar vinkonur þó Abbý
segði mér frá því svona í trúnaði að hún væri óttaleg gála og ætti það til að stinga undan
heimastelpunum. Heimastelpurnar passa bara þess betur upp á sína karla svo Lóa kemst ekki oft upp með það. Abbý hefur lánað henni
síldarpilsið sitt og sitja þær gjarnan að spjalli.
Fyrst rissar Abbý myndirnar upp, klippir síðan formin út og límir saman
Hér má sjá blaðabunkann sem hún notar til að klippa út myndirnar
Ein af þeim klippimyndum sem verða til sýnis og sölu
Til sýnis á vinnustofunni eru nokkrar myndir sem hún hefur teiknað af
lífshlaupi eiginmanns síns, honum Eysteini Aðalsteinssyni.
Abbý tók það þó fastlega fram "Eysteinn er ekki til sölu"
Á vinnustofunni má sjá hin fallegustu handverk af ýmsu tægi
Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir
Texti: Kristín Sigurjónsdóttir
Athugasemdir