Hvalaskoðun frá Ólafsfirði

Hvalaskoðun frá Ólafsfirði Forráðamenn Norðursiglingar ákvaðu nú nýverið að hefja hvalaskoðunarferðir úr Fjallabyggð næsta sumar.Fyrirtækið hefur verið

Fréttir

Hvalaskoðun frá Ólafsfirði

Forráðamenn Norðursiglingar ákvaðu nú nýverið að hefja hvalaskoðunarferðir úr Fjallabyggð næsta sumar.

Fyrirtækið hefur verið leiðandi afl í slíkum ferðum á Húsavík síðastliðin 16 ár en hyggst nú færa út kvíarnar.


Siglt verður daglega frá Ólafsfirði og munu ferðirnar verða með sama sniði og frá Húsavík.
Farnar eru þriggja tíma ferðir á íslenskum eikarbátum sem lokið hafa hlutverkum sínum sem fiskibátar en hafa nú verið vel útbúnir til farþegaflutninga.
Með tilkomu Héðinsfjarðaganga hefur orðið bylting í samgöngum í Fjallabyggð og þykir henta einkar vel til verkefnisins.
Uppbygging á sviði strandmenningar á Siglufirði þykir einnig styðja við ferðir sem þessar og er sérstaklega  til tekið hið stórglæsilega Síldarminjasafn sem og uppbygging Rauðku ehf.á veitingahúsum við smábátahöfnina.
Ólafsfjörður liggur vel við hvalaslóð á utanverðum Eyjafirði.
Ferðaþjónusta þar í bæ er í mikilli sókn og er horft til þess að gisting og þjónusta sé í boði fyrir ferðamenn sem leggja leið sína í hvalaskoðun.
Hótel Brimnes fer þar fremst í flokki en eigendur þess hafa unnið brautryðjendastarf á sviði ferðaþjónustu undanfarin ár.
Í kynningu Norðursiglingar á þessari nýju þjónustu verður lögð áhersla á sérstöðu svæðisins og þá starfsemi sem þar er að finna líkt og félagið hefur gert á kynningarefni sínu vegna starfsemi í Þingeyrarsýslu.

Gert er ráð fyrir að siglingar hefjist í byrjum júní 2011






Athugasemdir

20.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst