Rauðka ehf. hefur að undanförnu unnið að uppbyggingu ferðaþjónustu á Siglufirði. Fyrirtækið hefur fjárfest í fimm húsum við smábátahöfnina og eru framkvæmdir hafnar við uppbyggingu á svæðinu. Þar er ætlunin að setja upp veitingahús, upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk, aðstöðu fyrir handverksfólk, aðstöðu fyrir viðburði á vegum þjóðlagasetursins og fleira.
Frumkvöðlasetur
Markmið Rauðku ehf. er að byggja upp öflugt samstarf milli þeirra aðila sem koma að ferðaþjónustu í Fjallabyggð og nýta þá krafta sem til eru í bænum til að auka aðdráttarafl bæjarins enn frekar.
Rauðka hefur nú þegar myndað samstarf við Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði, SKSigló ehf. sem og rekstraraðila skíðasvæðisins á Siglufirði en þessi fyrirtæki hafa í hyggju að sameina krafta sína til að efla ferðaþjónustu á Siglufirði.
Á efri hæð Ísafold (hvíta hússins) hefur Rauðka standsett frumkvöðlasetur þar sem áðurnefnd fyrirtæki hafa skrifstofuaðstöðu. Í húsinu hefur einnig verið útbúið tölvuver þar sem ferðafólki, sem og íbúum bæjarins, gefst kostur á að skoða ljósmyndasafn Steingríms Kristinssonar á rafrænu formi og fá sér kaffisopa með starfsmönnum fyrirtækjanna.
Upplýsingamiðstöð fyrir ferðfólk
Danni (bláa húsið) er áætlaður að rými upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk þar sem fólk getur komið og fengið upplýsingar um þá þjónustu sem í boði er í bænum. Húsið mun einnig rýma salernis- og snyrtiaðstöðu fyrir gesti bæjarins.
Tjaldsvæði
Rauðka hefur í hyggju að setja upp tjaldsvæði á lóð sinni við höfnina og mun fyrirtækið leggja metnað sinn í að bjóða þar upp á fyrsta flokks þjónustu.
Bátaleiga
Rauðka hefur fjárfest í gömlum trébát sem fólki mun gefast kostur á að sigla um í og renna eftir fisk upp á gamla mátann. Á komandi árum hefur fyrirtækið í hyggju að bæta við sig nokkrum litlum og gömlum trébátum sem fólki gefst kostur á að leigja. Með þessari fjárfestingu er jafnframt verið að huga að menningaverðmætum sem eiga afar vel heima í bæ eins og Siglufirði.
Hannes Boy Kaffi
Hannes Boy kaffi (gula húsið) mun rýma veitinga- og kaffihús þar sem mögulegt verður að taka á móti stórum hópum fólks. Þar mun fólk geta gætt sér á góðum íslenskum mat meðan það nýtur útsýnisins yfir smábátahöfnina.
Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar
Þjóðlagasetrið á Siglufirði er eina safnið sem helgað er íslenskri þjóðtónlist og þjóðdönsum. Þjóðlagasetrið á frumkvæðið að því að byggja upp sameiginlegan gagnagrunn þjóðtónlistar og þjóðdansa allra landa við norðanvert Atlantshaf. Unnið er að samstarfi við Norður-Atlantshafslöndin og er í skoðun að Þjóðlagasetrið opni veglega sýningarsali (Norðurþjóðasetrið) helgaða þjóðtónlist og þjóðdönsum landanna við norðanvert Atlantshaf, byggi upp fjölþjóðlega akademíu sem kennir þjóðtónlist og þjóðdansa í menningarsögulegu samhengi og stuðli að varðveislu og útbreiðslu þekkingar á þjóðarhefðum. Stefnt er að því að eitt af húsum Rauðku muni rýma aðstöðu fyrir ráðstefnu- og sýningarsali Norðurþjóðanetsins og verður það hannað í samstarfi við Þjóðlagasetrið.
Útisvæði
Auk húsanna mun Rauðka leggja ríka áherslu á umhverfi þeirra. Fyrirtækið mun taka í gegn sund á milli þeirra, leggja í það snjóbræðslu, lýsingu, helluleggja og setja þar gróður sem mun án efa auka aðdráttarafl smábátahafnarinnar og svæðisins í kring til muna.























