SKSiglo.is

Í ferðahandbókinni "Iceland, Greenland and Faroe Islands" fær Siglufjörður alveg einstaklega jákvæða dóma. Í "high lights" kafla bókarinnar er fjallað ma.

Fréttir

Í ljósaskiptunum - ljósm: ök
Í ljósaskiptunum - ljósm: ök
Í ferðahandbókinni "Iceland, Greenland and Faroe Islands" fær Siglufjörður alveg einstaklega jákvæða dóma. Í "high lights" kafla bókarinnar er fjallað ma. um helstu 4-5 bæi landsins:

Vestmannaeyjar, Ísafjörður, Akureyri (sá fallegasti segir þar) og svo: "Siglufjörður, perhaps the nicest of all". Ferðahandbók þessi er gefin út á ensku og ítölsku af hinu virta Lonly Planet útgáfufyrirtæki

Í sér kafla um Siglufjörð aftar í bókinni eru þessi orð: "Siglufjörður, which may well be Iceland´s loveliest town ..."  Þessi ótrúlega jákvæða umsögn um staðinn okkar dregur hingað fleiri ensku- og ítölskumælandi ferðamenn en nokkuð annað.

Þegar rætt hefur verið við gesti okkar sem lýsa hrifningu á staðnum hefur stundum verið sagt: Þið ættuð bara að sjá Siglufjörð að vetri til - í skammdeginu t.d. þegar snjór er á jörðu og allt verður svo undarlega blátt í ljósaskiptunum tvisvar á dag!

Einn slíkur dásemdardagur var í dag!
-ök


Athugasemdir

30.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst