Eldur, eldur
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 23.01.2009 | 00:01 | Stefna ehf | Lestrar 176 | Athugasemdir ( )
Sennilega fyrsta bóksalan sem brennur á Siglufirði. (árið 1909)
Annað lesmál neðar.
Og sennilega hefur Bókaverslun Hannesar Jónassonar sem stóð við Aðalgötu 7 verið nr. 2 í þeim flokki !
En svo segir blaðið Siglfirðingur frá 27.janúar 1948:
>>> ÚR BÆNUM (umræðudálkur / fréttir, í blaðinu Siglfirðingur)
Húsbruni.
Mánudaginn þann 19. janúar sl. varð eldur laus í húsinu Aðalgötu 7,(1) hér í bæ. Húsið er eign frú Önnu Vilhjálmsdóttur, sem bjó þar ásamt syni sínum og tveimur dótturbörnum. - Húsið brann algjörlega.
Engu var bjargað af innbúi. Á neðri hæð hússins var bókaverslun Hannesar Jónassonar, og geymsla fyrir verslunin Sveinn Hjartarson. Þar brann ekki mjög mikið, en skemmdist allt af vatni og reyk. Tjónið var mjög tilfinnanlegt.
Í sambandi við bruna þennan finnst oss rétt, að minna á hversu bíræfin bæjarstjórnin okkar er, að leyfa sér að hafa öll hin verðmætu og óbætanlegu skjöl bæjarins með öllu óvarin fyrir eldi í hinu gamla timburhúsi, "Hvíta húsinu." Þarna sást, hvað eldurinn er fljótur að eyðileggja og engu var bjargað.
Hvernig færi, ef kviknaði í "Hvíta húsinu", ætli. yrði miklu bjargað af hinum verðmætu skjölum, sem myndi þýða mikið tjón fyrir Siglfirðinga í heild. Bæjarbúar munu, ábyggilega fylgjast vel með því, hvort bæjarstjórnin ætlar sér enn lengur að gera ekki skyldu sína í þessu máli, en það er að koma skrifstofum bæjarins og skjölum hans á óhultan stað. <<<<
_______________________
ES.
Þess má geta að i mars árið 1965 brann "Hvíta húsið" og mikið af skjölum glataðist.

Athugasemdir