Annað sem áður var

Annað sem áður var Hér á árum áður þegar Síldarverksmiðjur ríkisins ráku á Siglufirði síldar og loðnuverksmiðjur, var talið sjálfsagt að smíða þau tæki og

Fréttir

Annað sem áður var

Inni á hlut vélaverstæðisins
Inni á hlut vélaverstæðisins
Hér á árum áður þegar Síldarverksmiðjur ríkisins ráku á Siglufirði síldar og loðnuverksmiðjur, var talið sjálfsagt að smíða þau tæki og tól sem til þurfti, sem mest á heimaslóðum. 

Þar átti SR-Vélaverkstæði stóran þátt í þróuninni.


Stóru vélaverkstæðin sem þá voru við líði á suðurlandinu; Vélsmiðjan Héðin og Landsmiðjan áttu einnig stóran þátt í smíði og uppsetningu tækjabúnaðar við síldarverksmiðjur.

En þrátt fyrir það var mikið af þróuðum tækjabúnaði flutt til landsins frá Noregi sem voru fremstir í flokki á því sviði, svo og Svíþjóð og Danmörk.

Seinni hluta síðustu aldar og fram á þennan dag hefur þróunin verið mjög ör, og þrátt fyrir það að síldin hafi horfið frá Siglufirði, hélt SR-Vélaverkstæði áfram að smíða og þróa tæki og búnað til þessa iðnaðar með smíð fyrir verksmiðjur víða um landið.


Þar réði miklu hin áratuga þekking og reynsla starfsmanna SR-Vélaverkstæðis á meðferð og smíði úr ryðfríu stáli. Síldarverksmiðjur Ríkisins voru einmitt brautryðjendur í öllum heiminum með notkun og smíði úr ryðfríu stáli í tækjabúnað tengdum bræðsluiðnaðinum.

Svo framalega voru þeir, að þekktur verkfræðiháskóli í Danmörku var nær búinn að hafna prófverkefni sem einn nemandi þeirra lagði fram
(sem lært hafði hjá SR-Vélaverkstæði) um smíði úr ryðfríu stáli á búnaði vegna síldarvinnslu á Siglufirði. Efnisvalið  var talið óráðsía vegna kostnaðar og hvergi notað til slíkra hluta, í dag þekkist þó varla annað smíðastál til slíkra nota þar sem málmar eru í snertingu við hráefnið, og raunar á fleiri sviðum.

En eins og segir í formála  “Annað sem áður var” þá er SR-Vélaverkstæði á Siglufirði nú farið að flytja Siglfirska hönnun og búnað til Noregs, en þar eru menn að vinna við smíði á löndunarsíu og hráefnissíu vegna síldariðnaðar  fyrir fyrirtækið Egersund Sildoljefabrikk AS í Noregi.


Starfsmenn á SR-Verkstæði eru um 15-16 en ljósmyndin hér var tekin um hádegisbilið í gær þar sem þessir 13 voru staddir og stilltu sér upp fyrir ljósmyndarann.
Að baki þeirra er hluti útflutningsframleiðslunnar

Nú um þessar mundir hefur SR-Vélaverkstæði fundið fyrir áhrifum fjármálakreppunnar, verkefnastaða mætti vera betri, en þeir hafa fullan hug á að þrauka og enginn uppgjafatónn er að heyra á þeim bæ.

 


Athugasemdir

30.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst