Forsetinn í Ólafsfirði í dag

Forsetinn í Ólafsfirði í dag Eins og fram hefur komið hér á vefnum, þá var forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson á Siglufirði í dag kom svo forsetinn til

Fréttir

Forsetinn í Ólafsfirði í dag

Forsetinn í félagsheimilinu Tjarnarborg
Forsetinn í félagsheimilinu Tjarnarborg
Eins og fram hefur komið hér á vefnum, þá var forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson á Siglufirði í dag kom svo forsetinn til Ólafsfjarðar. Hann byrjaði á því að heimsækja leikskólann.

Því næst hitti hann nemendur grunnskólans í félagsheimilinu Tjarnarborg þar sem þau yngri sungu fyrir hann áður en hann sat fyrir svörum nemenda. Nemendur voru með margar spurningar til forstans bæði um starf hans og einkalíf. Sumum fannst ansi skrítið að hann væri bæði forseti og afi.

Eftir spjallið við nemendur grunnskólans heimsótti forsetinn nokkur fyrirtæki í Ólafsfirði áður en hann drakk kaffi með heimilisfólkinu á Hornbrekku, dvalarheimili aldraðra.

Veðrið var nú ekki var nú ekkert í spariskapinu en forsetanum virtist líka það vel og sagði það minna á heimaslóðir sínar.

Inga, (co. sk)


Athugasemdir

29.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst