Héðinsfjarðargöng

Héðinsfjarðargöng Unnið var af Háfellsmönnum við Vegskálana báðum megin ganganna Siglufjarðarmegin í morgun er sksiglo heimsótti göngin Siglugjarðarmegin.

Fréttir

Héðinsfjarðargöng

Háfellsmenn við vegskálann
Háfellsmenn við vegskálann
Unnið var af Háfellsmönnum við Vegskálana báðum megin ganganna Siglufjarðarmegin í morgun er sksiglo heimsótti göngin Siglugjarðarmegin. Verið var að undirbúa uppsetningu næst síðustu færslunnar við vegskálann vestanverðu og að austanverðum göngunum var verið að ganga frá vegna undirstöðu fyrir uppsetningu vegskálamóta.

Þá voru Háfellsmenn einnig að vinna við ýmis verk inni í göngunum, eins og að jafna gólf ganganna og fleira.  Metrostav menn voru að vinna við að steypuhúða  loft og veggi þar inni.

Nokkrar myndir frá í morgun eru HÉR


 
Ólafsfjarðarmegin hafa þeir átt í balsi, bæði vegna vatnsaga í byrjun vikunnar, svo og bilun rafmagnsbúnaðar og fleira.

Þar hafa þeir samt náð 45 metrum frá síðasta fimmtudegi eða samtals 4580 metrum. 



Athugasemdir

29.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst