Héðinsfjarðargöng
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 15.01.2009 | 11:13 | | Lestrar 554 | Athugasemdir ( )
Í morgun voru göngin Héðinsfjarðarmegin komin í 1815 metra eða 74 metra frá síðasta fimmtudegi. Enginn
var inni í göngunum er sksiglo.is kom þar í morgun rúmlega 08:00 og myrkur innst í göngunum og ein vinnuvél,
sem síðar kom í ljós að var biluð.
Nýbúið var að hreinsa eftir síðustu sprengingu og borvélinni hafði verið lagt nokkur hundruð metrum frá botni. Fleira var í ólagi hjá Metrostav mönnum, bílar voru bilaðir, meðal annars sá sem vanur er að flytja stafsmenn til og frá vöktum, svo selflytja þurfti starfsmenn til og frá vinnu í smærri bílum, en þess vegna meðal annars var enginn inni í göngunum er sksiglo.is bar að garði.
Nokkrir starfsmenn biðu í vinnuskúrum og lýsti svipur þeirra áhyggjum aldrei þessu vant, ólíkt því sem áður hefur verið með bros á vör og kátína úr augum.
Sennilega blandast það þeirri óvissu sem ríkir vegna afleiðinga fjármálakreppu heimsins og ekki hvað síst ástandsins á fjármálamarkaði hér heima á Fróni.
Yfirmenn hér á Siglufirði og Ólafsfirði hafa fundað mikið.
Óstaðfestar fréttir herma að komið hafi til tals að hlé verði gert á vinnu Metrostav manna í Ólafsfirði og vaktir þaðan fluttar til Siglufjarðar / Héðinsfjarðar.
Vakthópur sem átti að koma úr fríi um helgina muni ekki koma til Íslands og vakthópur héðan Siglufjarðarmegin muni fara út í frí.
Myndir teknar í morgun Héðinsfjarðarmegin
En eins og komið hefur fram í fréttum, meðal annars frétt af Stöð 2 / Vísir þá standa yfir viðræður á milli Metrostav manna og Vegagerðarinnar.
Smelltu á myndina til vinstri hér fyrir neðan til að lesa um það.
Ólafsfjarðarmegin í morgun var staðan 4460 metrar og 72 metrar frá síðasta fimmtudegi. Þar er ekki vatn að angra þá en bergið ekki eins gott og ákjósanlegt er.

Frétt frá Vísir.is |
Tafla stöðunnar |

Athugasemdir