Þarabreiða

Þarabreiða Ekki hefur verið sagt frá öllu því umstangi sem flóðið á dögunum olli.

Fréttir

Þarabreiða

Þarabreiða
Þarabreiða
Ekki hefur verið sagt frá öllu því umstangi sem flóðið á dögunum olli. Myndin hér sýnir eitt af því sem flóðið olli og ekki munað hvort slíkt hafi átt sér stað áður á þessu svæði. Þessi vegarslóði lá hér áður fyrr að afgreiðslu og olíuporti Shell á Siglufirði, en þar voru þegar mest var þrír olíutankar og fleira tilheyrandi olíuverslun.

Það eina sem eftir er frá þeim tíma er skúrbyggingin til vinstri á myndinni, sem nú er notaður sem smá tómstundaafdrep í ellinni af fyrrverandi forstjóra Shell á Siglufirði.

En nú í dag liggur þessi slóði að suðurinngangi Íþróttahússins á Siglufirði, sem ekki er greiðfær um þessar mundir vegna þara og grjóts sem brimið á dögunum flutti upp á svæðið.

Það verður væntanlega hækkað upp landslagið þarna þegar skúrbyggingin hefur lokið tilgangi sínum.
(vonandi ekki fyrr en eftir 20 ár eða svo, þegar núverandi notum líkur) 

Athugasemdir

30.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst