Torfæruakstur !

Torfæruakstur ! Bílaumferð sem fáir gátu átt von á að sjá á þessum tíma á viðkomandi stað eftir snjókomu síðustu daga, blasti við þeim sem litu yfir á

Fréttir

Torfæruakstur !

Komnir til baka - Smelltu á myndina
Komnir til baka - Smelltu á myndina
Bílaumferð sem fáir gátu átt von á að sjá á þessum tíma á viðkomandi stað eftir snjókomu síðustu daga, blasti við þeim sem litu yfir á Saurbæjarásinn á Siglufirði seinni partinn í gær.

Það var nokkuð öruggt að þangað höfðu engin snjómoksturstæki komið síðustu daga.

En samt voru þarna þegar flestir voru, 6 jeppar þar á meðal gamli góði Wilys jeppinn.
   

Eftir að hafa fylgst um stund með hópnum frá Hafnarbryggjunni, var ekki sjá að erindið væri annað en að prófa “gæðinga sína” þarna á ótroðnum snjónum sem huldi veginn sem liggur uppi á Ásnum.

Smá barningur var á leiðinni fyrir fyrsta bílinn, en hinir komu án erfiðleika í hjólförin, og Wilysinn einnig án vandræða.

Snúið var við neðarlega á Ásnum og haldið síðan til baka. Það skal áréttað að þarna var ekki farið yfir mörk markaðs vegaslóða, og því engar skemmir á gróðri sitthvoru megin við vegaslóðann sem þarna er..  

Athugasemdir

30.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst