Vetrarheimsókn
Hópur 9. bekkinga frá Árskóla á Sauðárkróki, 35 krakkar og þrír kennarrar þeirra, komu í sína árlegu heimsókn til Siglufjarðar í morgun.
Það er Síldarminjasafnið sem teygir skólastarf þeirra 90 km hingað austureftir.
Í framhaldi af námi í fiskveiðisögu Íslendinga er ferðinni heitið á þetta stærsta sjóminjasafn landsins. Safnstjóri segir þeim frá síldarsögunni og aðstæðum hér á Siglufirði áður fyrr með svolitlum samanburði við Skagafjörð. Horft er síðan á 15 mínútna langa kvikmynd af sveitastörfum og síldarvinnu fyrir 70 árum og síðan vinna nemendur skrifleg verkefni sem eru fólgin í því að velja sér fimm hluti í safninu og finna um þá upplýsingar. Inn í það "fræðilega" eru fléttaðir leikir eins og að lyfta 50 kg. mjölpokalóðum og "hver þorir að smakka?" (síld í boði og malt-verðlaun veitt hinum hugprúðu!). Hvað sem þeirri síldar-hugprýði líður þá voru krakkarnir afar prúðir og skemmtilegir gestir.
Þessar heimsóknir hafa fallið gestum okkar svo vel í geð að þær eru orðnar sem fastur liður í skólastarfi þeirra.
Á myndinni er krakkarnir að keppa í aflraunum og gáfu stelpurnar drengjunum ekkert eftir.
Athugasemdir