Héðinsfjarðagöng

Héðinsfjarðagöng Allt var á fullu við vinnu við Héðinsfjarðargöng í morgun, bæði Siglufjarðarmegin, Héðinsfjarðarmegin og í göngunum Ólafsfjarðarmegin.

Fréttir

Héðinsfjarðagöng

Boltafestingu komið fyrir, eftir að holan var fyllt með sérstakri  límblöndu
Boltafestingu komið fyrir, eftir að holan var fyllt með sérstakri límblöndu
Allt var á fullu við vinnu við Héðinsfjarðargöng í morgun, bæði Siglufjarðarmegin, Héðinsfjarðarmegin og í göngunum Ólafsfjarðarmegin. Senn líður að síðustu sprengingunni sem margir bíða spenntir eftir.
Starfsmenn segja okkur að gert sé ráð fyrir að það muni væntanlega ske í næstu viku, en ekki sé endanlega ákveðið hvort viðhafnarsprenging verði viðhöfð, né ákveðið hvenær sú athöfn færi fram.

Eftir er að bora / sprengja miðað við nýjustu tölur uppgefnar í morgun, aðeins 54,8 metra.

Vel hefur gengið við borunina, en samtals frá síðasta fimmtudegi hafa náðst 81 metri.

Í Morgunblaðinu í morgun kom fróðleg grein um göngin og gang mála (væntanlega skrifuð fyrripart vikunnar) Þú getur lesið með því að smella á myndina hér fyrir neðan.


Eins og áður segir þá var allt á fullu Siglufjarðarmegin og Héðinsfjarðarmegin og eru myndir frá því í morgun frá vettvangi.. Háfellsmenn voru meðal annars að bera ofan í gangagólfið, hefla það og þjappa.
Samhliða voru þeir að leggja háspennukapal og fleira.

Utandyra hafa þeir þurft að moka mikið af snjó, bæði til að geta nálgast efni í gangagólfið ofl., og gera fært samgöngulega séð.

Metrostav menn voru að nálgast lok Héðinsfjarðamegin við boltafestingar, vatn er nánast hætt að leka úr lofti ganganna ofl.
 Myndir frá í morgun eru hér


Smelltu á myndina til að stækka
 






Athugasemdir

29.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst