Héðinsfjarðargöng
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 12.02.2009 | 10:36 | | Lestrar 547 | Athugasemdir ( )
Frekar rólegt var yfir verkinu við göngin Siglufjarðarmegin í morgun. Aðeins fjórir menn frá Metrostav voru sjáanlegir við vinnu inni í göngunum, þar af þrír þeirra við þvott og lagfæringu á tæki. Meirihluti Háfellsmanna var kominn í langt helgarfrí og aðeins vinna við vegskálann Siglufjarðarmegin.
Stillt og gott veður var í Héðinsfirðinum og 9 °C frost Logn var og heiðskýrt bæði yfir Siglufirði og Héðinsfirði, en aðeins minna frost við gangamunnann Siglufjarðarmegin eða -8 °C
Nokkrar myndir HÉR
Ólafsfjarðarmegin hefur gengið ljómandi vel, en þar eru og hafa þeir verið að bora og sprengja fyrir mjög stóru útskoti og má segja að þar hafi verið sprengt með hliðsjón af útskotinu sem svarar 60-70 metrum frá síðasta fimmtudegi.
Ekkert vatn að angra þá og þokkalega gott bjargið.
Þá munu vera eftir að bora um 4-5 % það er 475-500 metrar þar til komið verður í gegn, “eftir því hver viðmiðunin er”.

Athugasemdir