Ragnar hættur við framboð

Ragnar hættur við framboð Ég hef alla tíð verið jafnréttissinnaður. En spurningin í mínum huga er hvernig menn nálgast jafnrétti. Í gær á kjördæmisþingi

Fréttir

Ragnar hættur við framboð

Ég hef alla tíð verið jafnréttissinnaður. En spurningin í mínum huga er hvernig menn nálgast jafnrétti. Í gær á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi felldu menn eðlilega þá tillögu að tvö efstu sæti á framboðslista Samfylkingar yrðu skipuð konu og karli.

Eftir tveimur efstu sætunum sækjast þrír karlmenn. Þótt það sé afar mikilvægt að konur taki meira virkan þátt í pólitík þá verður það að vera á jöfnum og lýðræðislegum forsendum.

Það er að mínu mati ekki lýðræðislegt að gefa ekki kjósendum fullan rétt til að kjósa þá sem þeir vilja í tiltekin sæti.
Eftir að tillagan hafði verið felld gengu konurnar út af fundinum en sneru aftur þegar búið var að gera sárabætur sem fólust í því að þær fái þá þriðja sætið örugglega og e.t.v. það fjórða.

Sem sagt, ný tillaga gekk út á það að hvort kyn mætti ekki skipa nema tvö sæti í röð á listanum.
Þetta túlka sumir sem jafnrétti og lýðræði.

Undirritaður ætlaði að gefa kost á sér í 3ja sætið en úr því að þessar reglur hafa verið samþykktar þá sér hann engan tilgang með því og dregur því framboð sitt tilbaka.

Virðingarfyllst,

Ragnar Thorarensen




Athugasemdir

29.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst