Verbúðir
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 21.11.2008 | 12:42 | | Lestrar 528 | Athugasemdir ( )
Eitt af verkefnum Rauðku ehf. á Siglufirði var að gera góða aðstöðu fyrir smábátaútgerðir í gamla salthúsinu
“hans Danna” þar er nú mjög góð aðstaða fyrir 6 trillukarla.
Lífið á Sigló heimsótti einn af trillukörlunum sem þangað hefur flutt starfsemi sína og var í morgun að koma fyrir búnaði sínum eftir flutning frá eldri stað. Það er Ragnar Ragnarsson (sonur Ragga Gísla heitins)
Raggi er með aðstöðu sína nú í gluggaríka plássinu sem sést á myndinni hér.
Myndin af Ragnari var tekin í morgun uppi í kaffistofu hans. Málverkið (eftir Gylva Ægis) á veggnum við hlið hans er báturinn Kári SI 173 sem þeir feðgar áttu saman hér áður fyrr og gerðu út.
En nú gerir Ragnar Ragnarsson út bátinn Raggi Gísla SI 73 – 2594 - bátur sem smíðaður var fyrir Ragnar í desember árið 2003

Athugasemdir