Hæfileikakeppni 2014
- 38 myndir
- 07.02.2014
það voru algjörir snillingar sem stigu á stokk þegar hæfileikakeppni fjallabyggðar 1-6. bekkinga var haldin í gær.Atriðin voru ca 22 og var
söngatriðin í meirihluta en einnig mátti sjá píanóleik,fiðluleik,fimleikaspor og einhverjir sögðu brandara. Þótt keppt hafi
verið um efstu tvö sætin í bæði einstaklings og svo hópatriðum þá voru allir sigurvegarar kvöldsinns og skein gleðin á andlitum
allra eftir vel heppnað kvöld, en dómnefndin valdi sex atriði og veitti þeim sérstaka viðurkenningu fyrir sína frammistöðu. Í flokki
einstaklinga fengu þær Sæunn Axelsdóttir 6.bekk með laginu "Mamma þarf að djamma" , Ronja Helgadóttir 4.bekk fyrir fluttning sinn á "Heyr
mína bæn" , Herði Inga fyrir glæsilegan píanóleik og svo Líney Láru 4.bekk sem sýndi fimleikaatriði. Í flokki hópatriða
fengu viðurkenningu dómnefndar Sigrún,Víkingur og Sunna fyrir fluttning sinn á "Nú kemur vorið" og Sylvía,Sandra,Kolbrún og
Sigríður fyrir "Dansaðu vindur,dansaðu". Það er ljóst að miklir hæfileikar leynast hér í Fjallabyggð og gaman verður að
fylgjast með þessum snillingum í framtíðinni.