Leigumiðlun Valló leggur metnað sinn í að þjónusta eigendur húsa á Siglufirði sem hafa áhuga á að leigja eignir sínar út til skemmri tíma. Með þessu móti vill fyrirtækið reyna að svara aukinni eftirspurn eftir gistingu á Siglufirði.
Leigumiðlunin fer þannig fram að húsnæði er bókað í gegnum síðuna eða í gegnum síma. Valló hefur svo samband við húsnæðiseiganda sem ákveður hvort leigja skuli húsnæði út á tiltektum tíma. Öll umsýsla og þjónusta fer svo í gegnum Valló og má nálgast reglur leigumiðlunarinnar hér