Slæm útreið á æðarvarpi

Slæm útreið á æðarvarpi Þegar snjó tók að leysa eftir tveggja vikna hrakviðri, bleytulenju og snjókomu, hefur komið í ljós að æðarvarp hefur orðið illa

Fréttir

Slæm útreið á æðarvarpi

Þessi lifði af vorhretið 2011
Þessi lifði af vorhretið 2011

Þegar snjó tók að leysa eftir tveggja vikna hrakviðri, bleytulenju og snjókomu, hefur komið í ljós að æðarvarp hefur orðið illa úti. Á að giska 60% af hreiðrum í firðinum hafa verið yfirgefin og máfar hafa komist í mikla eggjaveislu.

Ætla má að fjöldi hreiðranna geti verið um 600 og hvert með 4 eggjum að meðaltali. Þá er ljóst að varp annarra fuglategunda s.s. vaðfugla hefur misfarist. Þeir fuglar sem skammt voru komnir í ásetu munu líklegast vera færir um að verpa aftur.

Nokkrir áhugamenn um fuglavarp hafa gripið til byssu og skotið máfa til að hindra það að þeir útrými öllu varpi – en reynslan hefur sýnt að hafi þeir einu sinni komist á bragðið þá eru þeir nær óstöðvandi og hrekja eggjamæður grimmt af hreiðrum sínum.

Myndirnar sýna nýfæddan unga ásamt ábrotnum systkinaeggjum og einum upphengdum óvini.










Athugasemdir

04.apríl 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst