Mikil er dýrð himinsins

Mikil er dýrð himinsins Fallegt veður er á Siglufirði í dag 27. desember logn og gott skíðafæri kl. 10:30 voru þessar myndir teknar af Glitskýi á

Fréttir

Mikil er dýrð himinsins

Fallegt veður er á Siglufirði í dag 27. desember logn og gott skíðafæri kl. 10:30 voru þessar myndir teknar af Glitskýi á suðurhimni horft inn Skútudal með Hólshyrnuna til hægri á myndunum.

Glitský myndast gjarnan í um 15 - 30 km hæð, þegar óvenjukalt er í heiðhvolfinu (um eða undir -70 til -90 °C), og eru úr ískristöllum sem brjóta sólarljósið og mynda hina miklu litadýrð. Glitský sjást helst um miðjan vetur, um sólarlag eða sólaruppkomu og eru mjög greinileg þótt rökkvað sé eða jafnvel aldimmt við jörð. Glitský sjást yfirleitt árlega einhverstaðar á Norðurlandi en síðast voru glitský mynduð á Siglufirði nákvæmlega fyrir þremur árum, 27. desember 2008.
Litadýrðin þykir minna á þá liti sem sjá má í hvítu lagi sem er innan á sumum skeljum (s.n. ,,perlu-móður''-lag í perluskeljum) og eru þau í ýmsum tungumálum því nefnd perlumóðurský – pearl-of-mother-cloud.

Hið alþjóðlega fræðiheitin er hinsvegar nacreous cloud











Texti á inngangi og fjórar fyrstu myndir: GJS

Texti á innihaldi og tvær síðustu myndir: ÖK


Athugasemdir

28.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst