Ráðherra opnar Gagnatorg veðurupplýsinga

Ráðherra opnar Gagnatorg veðurupplýsinga Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, opnaði í gær nýtt vefsvæðisem hlotið hefur nafnið Gagnatorg

Fréttir

Ráðherra opnar Gagnatorg veðurupplýsinga

Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, opnaði í gær nýtt vefsvæði
sem hlotið hefur nafnið Gagnatorg veðurupplýsinga. Á Gagnatorginu má
með einföldum hætti nálgast allar veðurathuganir Veðurstofu Íslands
sem skráðar eru í gagnagrunna hennar.

Katrín Jakobsdóttir. Mynd: dv.is

Þessar athuganir taka til meira en 200 veðurstöðva víðsvegar um landið og ná í sumum tilvikum allt aftur til ársins 1931.

Það eru fyrirtækin Reiknistofa í veðurfræði / Belgingur og DataMarket
sem standa að þróun og rekstri Gagnatorgsins.

"Við erum sannfærð um að bætt aðgengi að þessum gögnum á eftir að hafa
margvísleg jákvæð áhrif í för með sér", segir Ólafur Rögnvaldsson,
framkvæmdastjóri Reiknistofunnar. "Gagnatorgið gerir fræðimönnum,
námsmönnum og áhugamönnum um veðurfar mun hægara um vik að nálgast
þessar upplýsingar en hingað til hefur verið og við vonumst til að sjá
mun stærri hóp vinna með og nýta þessi gögn en áður."

Þannig sér Ólafur til dæmis fyrir sér að nemendur muni nýta
gagnatorgið til að fræðast um veðurfar í sinni heimabyggð og þróun
þess undanfarna áratugi. Með tímanum stendur jafnframt til að nemendur
og aðrir áhugamenn um veðurathuganir geti deilt sínum eigin mælingum
með öðrum með hjálp Gagnatorgsins.

"Það sem okkur þykir þó mest spennandi við þennan opna aðgang er það
sem við höfum ekki hugmyndaflug til að sjá fyrir" bætir Ólafur við,
"nýsköpun, uppgötvanir eða skemmtileg framsetning sem notendur eiga
eftir að láta sér detta í hug þegar gögnin eru orðin svona
aðgengileg."

Notendur vefsins geta valið veðurstöðvar á korti eða flett þeim upp í
lista, hakað við þær mælingar sem þeir hafa áhuga á að sjá og kallað
þær fram fyrir valið tímabil. Gögnin má svo skoða hvort heldur er sem
töflu eða á myndriti eða hala þeim niður til frekari úrvinnslu til
dæmis í töflureikni á borð við Excel.

Gagnatorgið má nálgast á vefsvæði Reiknistofunnar, riv.is eða beint á
slóðinni vedur.datamarket.net



Athugasemdir

28.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst