Arnar Herbertsson með sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Arnar Herbertsson með sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Laugardaginn 6. júní kl. 14.00 – 17.00 opnar Arnar Herbertsson sýningu í Kompunni,

Fréttir

Arnar Herbertsson með sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Laugardaginn 6. júní kl. 14.00 – 17.00 opnar Arnar Herbertsson sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Sýningin samanstendur af  átta málverkum og ber yfirskriftina 

Ljós í augum dagsins.  

Sýningin stendur til 24. júní.

Kompan er opin daglega kl. 14.00 - 17.00 þegar skilti er úti.

Arnar Herbertsson er fæddur á Siglufirði árið 1933 og ólst þar upp. Hann lærði húsamálun sem hann sinnti samhliða myndlistariðkun eftir þörfum. Hann flutti til Reykjavíkur 1958 og nam við Myndlistaskólann í Reykjavík 1959-67. Hann sýndi fyrst á haustsýningum FÍM (Félags íslenskra myndlistarmanna) 1965 og 1966 en varð síðan virkur í SÚM (Samband ungra myndlistarmanna) og tók þátt í samsýningum þess bæði innanlands og erlendis.

Hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Ásmundarsal árið 1967 og síðast í Neskirkju 2014. Hann var þáttakandi á Tvíæringnum í Rostock í Þýskalandi 1969 og í Nutida Nordisk Konst í Hässelby-höllinni í Svíþjóð 1970. Snemma á sjöunda áratugnum dró Arnar sig í hlé og sýndi lítið þar til árið 1990 en hefur sýnt reglulega eftir það og verk hans verið valin til sýningar. Arnar hefur hlotið starfslaun úr launasjóði myndlistarmanna og verk eftir hann eru í eigu helstu safna á Íslandi.

Nú nýverið tók Arnar þátt í samsýningunni Nýmálað sem sett var upp á Listasafni Reykjavíkur.

Arnar H.

Sumarsýning  í heimabænum - Siglufirði 2015

Ljós í augum dagsins

Heimur Arnars er Siglufjörður, þar sem hann ólst upp og þroskaðist meðal ljóss og skugga.  Allt sem hann upplifði , sá og fann var í þessum lokaða einangraða firði með einn sjóndeildarhring opinn útá íshaf.

Fjörðurinn sem ól hann og umvafði eins og móðurástin, var líka 

kæfandi og þrúgandi, en veitti á sama tíma innblástur, örvun og 

djúpa næmni. Eins og hjá mörgum listamönnum þá sýnir þessi 

næmni hans myrkustu og björtustu hliðar lífsins.

Arnar H.

Eftir upplifun langra kalda vetrarnátta sem aldrei ætla að taka 

enda kemur loksins  birta endalausrar sumarnæturinnar þegar 

fjörðurinn er stilltur og fjöllin speglast í spegilsléttum sjónum 

sem einungis gárast af svamli ástfangins Æðarblika eða flugi 

tígulegrar Kríu. Ilmurinn í loftinu er sambland af fjöruþangi, 

tjöru, dieselolíu og fiski.

Arnar H.

Svo er mótsögnin við kyrrðina þegar bryggjurnar iða af lífi og 

síldarvertíðin er í fullum gangi , ys og þys, hlátur , vélardynur, 

reykur,  kappsemi kalla og kvenna í von um betra líf og bjartari 

framtíð. 

 

Slíkt umhverfi  gat ekki gert annað en að móta viðkvæma lund 

og ýta undir frekari næmni hjá litlum rauðhærðum gutta.

Árin líða og drengurinn breytist í ungan mann. Fjörðurinn sem á 

hann allan endar að lokum með því að kæfa hann. Eilíf óstöðvandi þrá til fjarðarins, þessi djúpa nostalgía sem á hann leitar stöðugt, þessi djúpa þrá fyrir glötuðum tíma. 

Brottfluttur, þá er , eftir sem áður, staðurinn  bæði í vöku og draumi í honum 

 

alla tíð og alltaf og hann leitar sífellt þangað aftur og alltaf.


Athugasemdir

22.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst