Brjóstakrabbameinsskoðun áfram í boði á Akureyri
Vikudagur greinir svo frá að brjóstakrabbameinsskoðanir verða gerðar á Sjúkrahúsinu á Akureyri til áramóta að minnsta kosti.
Sjúkrahúsið á Akureyri hefur samið við Björn Sigurðsson röntgenlækni um að sinna brjóstakrabbameinsskoðunum til áramóta hið minnsta. Björn hefur sinnt þessum skoðunum undanfarin ár. Vikudagur greindi frá því fyrr í sumar að konur á Akureyri og nágrenni sem leita þurfa læknis vegna gruns um brjóstakrabbamein sáu fram á að ferðast til Reykjavíkur þar sem engin læknir sinnti klínískum brjóstaskoðunum fyrir norðan.
Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir
Texti: Vikudagur og Kristín Sigurjónsdóttir
Athugasemdir