Brúðusafnið á Ólafsfirði opnar á morgun 17. júní
sksiglo.is | Almennt | 16.06.2014 | 20:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 249 | Athugasemdir ( )
Á morgun, þann 17. júní, kl. 15:00 opnar brúðusafn í Ólafsfirði.
Safnið er staðsett í húsinu Sigurhæð, Aðalgötu 15, þar sem bókasafnið er nú til húsa.
Um er að ræða brúðusafn Helgu Ingólfsdóttur og er þetta fyrsti áfangi sem opnar á morgun á 3ju hæð hússins.
Þegar bókasafnið hefur verið flutt á nýjan stað mun safnið stækka og verða settar upp fleiri dúkkur á 2. hæð
hússins.
Frétt af vef Fjallabyggðar. Sjá nánar hér.
Athugasemdir