Einar Mikael töframaður og Viktoría Töfrakona á norðurleið
sksiglo.is | Almennt | 05.09.2014 | 05:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 282 | Athugasemdir ( )
Einar Mikael töframaður og Viktoría Töfrakona á norðurleið
Einar Mikael þekkja margir en Viktoría er líklega fyrsta töfrakona
Íslands. Hún kann margt fyrir sér í töfrabrögðum og er búin að taka þátt í mörgum sýningum með Einari um allt
land og verður líklega skemmtilegt fyrir stúlkurnar að fá kvennkyns fyrirmynd í töfrabrögðum.
Einar og hrafninn.
Einar og Viktoría eru að vinna í nýjum sjónvarpsþáttum sem munu bera nafnið Töfrahetjurnar og verða sýndar á Stöð
2 í haust. Þættirnir verða fjölskylduþættir sem fjalla um töfrabrögð og sjónhverfingar og dýr koma þónokkuð
við sögu í þáttunum. Einar er líka að þjálfa upp Hrafn sem kann að draga spil, sveifla töfrasprota og finna faldna hluti.
Viktoría og páfagaukurinn Merlin.
En Einar og Viktoría verða með töfrasýningu á Allanum á Siglufirði fimmtudaginn 2. okt kl 19:30 og verður miðaverð 2000 kr.
Viktoría og Einar.
Annars er dagskráin svona á norðurlandi hjá þeim Einari og Viktoríu
Húsavík – þriðjudagurinn 30. Sept. – Leikhúsið – kl. 19:30
Dalvík – Miðvikudagurinn 1 okt. – Berg – kl. 19:30
Siglufjörður – Fimmtudagurinn 2. Okt – Allinn – kl. 19:30
Sauðárkrókur – Föstudagurinn 3. Okt – FNV – kl. 19:30
Akureyri – laugardagurinn 4. Okt – Sjallinn – 15:00 og kl. 19:30
Hér er svo facebook síða sem hægt er að fylgjast með
þeim Einari og Viktoríu. https://www.facebook.com/tofrabrogd
Athugasemdir