Eins og belja á svelli
sksiglo.is | Almennt | 22.10.2014 | 08:35 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 815 | Athugasemdir ( )
Þeir Hilli og Lúlli vildu meina að fólk væri nokkuð duglegt að láta skipta yfir á vetrardekkin og það hefði verið nokkuð jafnt og þétt. Í gærmorgun kom hinsvegar góðlátleg áminning og þá koma alltaf smá hvellir á hjólbarðaverkstæðinu en þegar rennt var í hlað mátti sjá fjölda bíla bíða á svæðinu.
Samanþjappaður snjórinn hafði ollið töluverðri hálku í gær og voru eflaust einhverjir ökumenn eins og beljur á svelli, ennþá með slétta og fína sumarhjólbaraðana undir bílnum.
Athugasemdir