Eitthvað á hverjum degi!
sksiglo.is | Almennt | 23.08.2014 | 14:06 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 414 | Athugasemdir ( )
“Eitthvað á hverjum degi” var markmið sem Kristbjörg Marteinsdóttir, eða Kittý, eins og hún var iðulega kölluð, setti sér í miðri lyfjameðferð við brjóstakrabbameini árið 2008. Forsagan var sú að hún hafði greinst árið 2003, þá einungis 37 ára, með brjóstakrabbamein líkt og um 180 íslenskar konur.
Laugardaginn 30.ágúst verður haldið í söfnunar- og minningargöngu Kittýar úr Héðinsfirði að íþróttamiðstöðinni að Hóli. Markmiðið er að styðja við baráttuna gegn brjóstakrabbameini og um leið að heiðra minningu Kittýar.
Athugasemdir