FM Trölli skipuleggur fund á Rauðku
Gunnar Smári, forsprakki FM Trölla, hefur undanfarna daga unnið að skipulagningu athyglisverðs fundar á Rauðku þar sem forsvarsmenn allra framboðana mæta á sameiginlegan fund. Gunnar Smári mun sjá um fundarstjórn og að senda spurningar gesta úr sal á frambjóðendur.
Fundinum verður að sjálfsögðu útvarpað beint á FM Trölla 103,7 eða á vef útvarpsstöðvarinnar fm.trolli.is. Gunnar hvetur sem allra flesta til að mæta enda gott að nýta tækifærið til að spyrja frambjóðendurnar spjörunum úr og mynda sér skoðun á hvaða flokkur hugnist manni best í komandi kosningum.
Athugasemdir