Fréttatilkynning frá Norðursiglingu
Hvalaskoðunarbáturinn Haukur í eigu Norðursiglingar á Húsavík strandaði við Lundey á Skjálfanda rétt fyrir klukkan 18 í dag. Um borð voru 19 farþegar og tveir í áhöfn. Engan sakaði.
Upp úr klukkan 21 tókst að ná bátnum á flot og siglir hann nú fyrir eigin vélarafli til hafnar. Enginn leki hefur komið í ljós.
Málsatvik voru þau að verið var að skoða lunda við eyjuna og vegna mannlegra mistaka var bátnum siglt of nærri eyjunni. Við það sat báturinn fastur og tók að halla.
Kallað var strax eftir aðstoð og neyðaráætlun skipsins sett í gang. Hlúð var að farþegum þar til þeir voru ferjaðir frá borði og fluttir til Húsavíkur til aðhlynningar á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Norðursiglingar.
Björgunaraðgerðir gengu hratt og vel fyrir sig. 20 mínútum eftir að tilkynnt var um atvikið var gúmmíbátur frá Norðursiglingu kominn á staðinn og fleiri bátar fylgdu í kjölfarið. Aðstæður voru góðar, rólegt í sjóinn og lítil hætta á ferðum.
Norðursigling vill koma á framfæri kæru þakklæti til allra þeirra sem komu að aðgerðum og þá sérstaklega;
Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu
Björgunarsveitinni Garðari
Rauða krossinum
Gentle Giants
Sæunni ÞH
Flatey ÞH
Slökkviliði Húsavíkur
Lögreglunni á Húsavík
Athugasemdir