Fyrsta skóflustungan að Salthúsinu
Formenn landsstjórna Grænlands, Færeyja og Álandseyja koma í heimsókn á Síldarminjasafnið þriðjudaginn 27. maí í boði forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Með í för verða aðrir virðulegir gestir
svo sem forseti Norðurlandaráðs og framkvæmdastjóri norrænu ráherranefndarinnar. Þetta er um 30 manna hópur sem skoðar safnið milli
klukkan 15.30 og 16.30 og þiggur einfaldar veitingar og nýtur íslenskra þjóðlaga.
Við þetta tækifæri mun forsætisráðherra taka fyrstu skóflustunguna að Salthúsinu, geymslu- og sýningarhúsi sem reisa á á safnlóðinni í sumar.
Athöfnin hefst við komu gestanna og er öllum frjálst að vera viðstaddir þá stuttu stund sem hún fer fram.
-ök
Athugasemdir