Gamlir Siglfirðingar gefa út disk
Róbert og Guðmundur, hverjir eru það?
Það eru tveir brottfluttir Siglfirðingar, Róbert Óttarsson og Guðmundur
Ragnarsson, sem búa á Króknum. Þeir eru að gefa út nýjan geisladisk sem ber heitið Orð. Þar syngur Róbert ellefu lög sem
Guðmundur hefur samið. Textar á diskinum eru eftir ýmsa höfunda.
Hafið þið starfað lengi saman?
Í nokkur ár af og til í smáverkefnum. Síðustu tvö árin í 'Manstu
gamla daga' sem hefur verið sett upp árlega á Sauðárkróki og stundum verið farið með á Siglufjörð.
Af hverju ákváðuð þið að gefa út geisladisk?
Róbert: Ég var búinn að heyra nokkur lög sem
Guðmundur hafði samið og m.a. sungið eitt fyrir hann í Dægurlagakeppni kvenfélagsins á Sauðárkróki. Mér fannst þetta
mjög heillandi lög og þegar maður hefur einu sinni meðtekið þau þá verða þau ekki leiðigjörn. Ég setti því
suð- og tuðvélina í gang og hætti ekki fyrr en hann féllst á að fara í þessa útgáfu með mér.
Guðmundur: Mér finnst Róbert mjög góður söngvari og röddin í honum passar einhvern vegin við þessi lög þannig að ég
sló til.
Var verkefnið skemmtilegt?
Guðmundur: Mjög svo. Allt einu einu er þetta ekki skemmtilegt einkamál lengur því almannaálit er
ekkert grín að eiga við. Það var því ekki annað að gera en að byrja og hafa trú á verkefninu. Við fengum Fúsa Ben
upptökumann og gítarleikara á Króknum með okkur ásamt fleiri góðum og afurðin er sem sagt þessi diskur. Við erum alla vega nokkuð
ánægðir með útkomuna og nokkrir hafa haft samband og lýst yfir ánægju með diskinn. Það er alltaf gaman.
Hvað stendur til á Siglufirði hjá ykkur?
Það verða útgáfutónleikar á Kaffi Rauðku
laugardagskvöldið 11. október og hefjast þeir kl. 21:30. Þeir eru reyndar auglýstir kl. 21:00 en þeim hefur verið frestað um
hálftíma. Það er þá bara hægt að spjalla svolítið á undan. Diskurinn verður svo auðvitað til sölu á
tónleikunum. Það kostar 1.000 kr inn og allir velkomnir.
Athugasemdir