Gleðilegt sumar pabbi.....en afhverju er veturinn kominn aftur?
sksiglo.is | Almennt | 23.04.2015 | 09:50 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 1058 | Athugasemdir ( )
Það var kósí að teygja úr sér í morgun og hjúfra sig undir sæng þar til sonurinn dró mann fram úr og sagði "gleðilegt sumar pabbi......en afhverju er veturinn kominn aftur"?
Svarið var einfalt "sonur sæll, svo að sumarið verði gott þá þarf það að frjósa saman við veturinn og það hlýtur þá að verða extra gott sumar á Sigló". Að minnstakosti var pabbinn sáttur við þessa útskýringu og vonaði innilega að hún verði að veruleika.
Athugasemdir