Hvar er veðrið sem var búið að lofa okkur??
sksiglo.is | Almennt | 02.07.2014 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 472 | Athugasemdir ( )
Við vitum ekki betur en það hafi verið búið að lofa okkur grenjandi
rigningu og roki með alls konar hliðarvindum og fjúkandi fellihýsum og einu og einu trampólíni.
Nokkrir dropa hafa sést á Sigló og Óló það sem af er
þessu óveðri. Hér er bara hlýtt og gott og "það sést í blátt" eins og maðurinn sagði einhverntíman löngu
áður en ég fæddist.
Við vildum bara svona koma því á framfæri við brottflutta
Siglfirðinga hvernig veðrið er á heimaslóðum og vonum að sem flestir fari nú að fá sól og hita eins og Siglfirðingar hafa haft
líklega síðan í maí.
Góðar og veðursælar stundir.
Þessir ferðamenn voru jafn hissa og ég og röbbuðu um það hvort það hefði ekki örugglega átt að vera grenjandi rigning og
rok.
Hólshyrnan og hótelið.
Miðbærinn.
Athugasemdir