KF + Siglósport = Hummel

KF + Siglósport = Hummel KF og Siglósport hafa gert með sér samning um að KF spila í Hummel næstu þrjú árin. Það er gríðarlega ánægjulegt að þessi

Fréttir

KF + Siglósport = Hummel

KF og Siglósport hafa gert með sér samning um að KF spila í Hummel næstu þrjú árin.

Það er gríðarlega ánægjulegt að þessi samningur sé orðinn að veruleika bæði fyrir félagið sem og Siglósport. Með samningnum þá mun Siglósport sjá um búningamál félagsins og munu foreldrar geta farið í búðina og pantað sér búning og látið merkja. 

Miðvikudaginn 12.nóvember milli kl 17 og 20 fer fram mátunardagur í Siglósport. Iðkendur og foreldrar eru hvattir til að kíkja í verslunina og máta fatnaðinn sem er tilvalin jólagjöf en stefnt er að því að vörurnar verði tilbúnar til afhendingar fyrri partinn í desember. Við hvetjum líka þá sem æfa knattspyrnu yfir sumartímann til að nýta tækifærið og ganga frá mátun og kaupum á fatnaðinum.

Þess má geta að KF og Tennis- og badmintonfélag Siglufjarðar (TBS) munu samnýta utanyfirgallann þannig að börn og unglingar sem stunda báðar íþróttagreinar geta nýtt gallann bæði í tengslum við knattspyrnuna sem og badminton. Þeir foreldrar sem eiga börn sem einungis stunda badminton hjá TBS eru að sjálfsögðu velkomin á mátunardaginn og ganga frá pöntun af utanyfirgallanum.

Hér eru linkar sem sýna fatnaðinn:
Sokkar: http://www.hummel.net/da-DK/product/Kollektioner/Sport/Fundamentals/22-111/BLUE/WHITE
Stuttbuxur: http://www.hummel.net/da-DK/product/Kollektioner/Sport/Team%20Player/10-749/TRUE_BLUE
Keppnistreyja: http://www.hummel.net/da-DK/product/Kollektioner/Sport/Team%20Player/04-277/TRUE_BLUE
Buxur: http://www.hummel.net/da-DK/product/Kollektioner/Sport/Stay%20Authentic/32-101/BLACK
Peysa: http://www.hummel.net/da-DK/product/Kollektioner/Sport/Roots/36-406/TRUE_BLUE

Með kveðju frá KF


Athugasemdir

24.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst