Komið í úrslit jólalagakeppni Rásar 2
sksiglo.is | Almennt | 14.12.2014 | 06:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 635 | Athugasemdir ( )
Lagið "Gleðileg Jól" sem samið er af Magnúsi Ólafssyni og flutt af Daníel Pétri Daníelssyni er nú komið í úrslit jólalagakeppni Rásar 2.
Tíu lög standa nú erftir í keppninni af þeim 80 sem send voru inn og því frábær árangur hjá þeim félögum að vera komnir svo langt á veg með lag Mangúsar. Lögin eru nú í spilun á Rás 2 og verða til 18.des en á því tímabili er hægt að kjósa uppáhaldslagið sitt á vef rásar tvö sem nálgast má hér. 19.des verður úrslitalagið síðan kynnt.
Athugasemdir