Ljósmyndasýningin í Bláa
sksiglo.is | Almennt | 21.04.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 504 | Athugasemdir ( )
Það var vægast sagt mikið um að vera þessa
páskahátíð á Sigló.
Listamenn sýndu list sína hingað og þangað um bæinn, dansleikir og
skemmtanir voru bæði í Allanum og Rauðku og var vel sótt á báða staði, blakmót, gönguskíðamót og allskonar
fjölskyldumót voru út um allt. Vafalaust er ég að gleyma einhverju og biðst ég velvirðingar á því.
Skíðasvæðið var vel sótt eins og áður hefur komið fram
á siglo.is og allsstaðar líf og fjör.
Ljósmyndasýningin í Bláa húsinu á Rauðku torgi var vel
sótt og er gróflega áætlað að um fjórða hundrað manns hafi sótt sýninguna sem fór fram úr björtustu vonum
sýnenda.
Ég náði að smella af nokkrum myndum af gestum sem komu við á
sýningunni.
Ljósmyndaklúbbur Fjallabyggðar vill þakka öllum þeim sem lögðu
leið sína á sýninguna.
Róbert Pálsson
Elín Björg
Sandra Finns
Árni (Dóri), Jósefína og Hrólfdís.
Róbert Guðfinnsson og Jóhanna Svavarsdóttir.
Athugasemdir