Ljósvíkingar í kvöld á Fm Trölla
sksiglo.is | Almennt | 07.04.2014 | 15:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 295 | Athugasemdir ( )
Eins og margir vita þá hefur Spurningakeppni Almættisins verið á
dagskrá Fm Trölla nú um nokkurt skeið í þættinum Ljósvíkingar. Þátturinn hefur fengið ágæta hlustun og
mörgum finnst þátturinn alls ekkert leiðinlegur. Þátturinn er kl. 20 á mánudagskvöldum.
Sigurður Ægisson hefur haft veg og vanda að spurningum keppninnar og þeir eru honum
til halds, trausts, og almennra leiðinda þeir Steini Sveins, Árni Heiðar og Hrólfur.
Sigurði er stundum vorkun af því að vera í þættinum
því hinir þáttarstjórnendurnir vita oft á tíðum ekki hvort þeir eru að koma eða fara og hafa átt það til að svara
spurningum Sigurðar áður en hann spyr honum til ómældrar gleði og ánægju.
Fyrir viku kepptu annars vegar Pósthúsið og Dótakassinn og hinsvegar Torgið
og Fiskmarkaður Siglufjarðar. Dótakassinn og Fiskmarkaðurinn unnu sína mótherja og eru því komnir í undanúrsit.
Í fyrri viðureigninni í kvöld, kl. 20.00, eigast við Sparisjóðurinn
og Bensínstöðin og í þeirri síðari, kl. 21.00, Síldarminjasafnið og Lífeyrisþjónustan.
Eftir að úrslit verða kunn mun fulltrúi sýslumanns, Halldór
Þormar Halldórsson, sem dró saman liðin í átta liða úrslitunum, koma og draga um hvaða lið skuli mætast í undanúrslitunum
eftir viku. Úrslit verða svo ekki fyrr en eftir hálfan mánuð, í þriggja tíma þætti.
Hægt er að hlusta á fm 103,7 á stór Fjallabyggðarsvæðinu og
svo að sjálfsögðu á netinu á fm.trolli.is
Siglfirðingur.is fjallar einnig um þátttinn. Sjá hér.
Athugasemdir