Mikið fjölmenni í söfnunar og minningargöngu
Það var stór hópur fólks sem lagði af stað í gönguna "Eitthvað á hverjum degi" frá Héðinsfirði síðastliðinn laugardag til að leggja málefninu lið en gengið var til styrktar rannsókna á brjóstakrabbameini.
Hátt í annað hundrað manns mættu í gönguna allstaðar að af landinu og minning hinnar ötulu baráttukonu Kittýjar vel heiðruð. Vil leifum hér að fylgja nokkrar myndir af deginum góða en enn fleiri myndir má nálagst í myndasafninu hér.
Það lögðu allir hönd á plóg.
Það er ekki spretthlaup að berjast við langvarandi erfið veikindi og "Eitthvað á hverjum degi" leggur mikilvægu málefni lið.
Allur ágóði kjötsúpusölu við Hól rennur beint til málefnisins.
Ljósmyndari: Dagný S. Finnsdóttir
Athugasemdir