Mikil aðsókn og ánægja með opnun Sigló Hótels
Nú er mikill fjöldi í heimsókn á Sigló Hótel og eru líklega hátt í eitt þúsund manns búnir að líta við á opnunardaginn. Mikil ánægja ríkir meðal gesta sem lýsa hrifningu sinni á staðsetningu og hönnun hótelsins sem telur alls 68 herbergi.
Fólk hefur litið við allstaðar að og mikið er af aðkomufólki á staðnum, það er því ánægjulegt að upplifa áhugann á hótelinu og að fólk leggi land undir fót til að líta við og skoða.
Sigló.is mun birta frekari umfjöllun og myndir frá hótelinu innan skamms.
Sjá hér: SIGLÓ HÓTEL. Fullt af myndum fyrir alla sem ekki komust á opið hús.
Athugasemdir