MS Fram frá Hurtigruten í Noregi kemur til Siglufjarðar
sksiglo.is | Almennt | 28.05.2014 | 21:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 445 | Athugasemdir ( )
Á morgun, fimmtudag, heimsækir skemmtiferðaskipið MS Fram frá Hurtigruten í Noregi Siglufjörð.
Skipið mun liggja við bryggju frá kl. 15:00 - 22:00.
Mjög lítil dagskrá er skipulögð fyrir farþega á meðan
dvöl þeirra stendur og hafa farþegar því mjög rúman frítíma og má því búast við að flestir nýti
tímann til að ganga um bæinn og skoða sig um.
Eru veitingastaðir, kaffihús, gallerí, vinnustofur - og allir sem áhuga hafa,
hvattir til þess að hafa opið hjá sér seinnipartinn á morgun og bjóða skipafarþegana velkomna til Siglufjarðar. Vel hefur reynst að hafa
skilti utan við dyr eða jafnvel að hafa opið út, svo ekki fari á milli mála að það sé opið.
Von er á fimm skemmtiferðaskipum til viðbótar í sumar - bæði
í júní og júlí.
Athugasemdir