Nýr meirihluti í Fjallabyggð
sksiglo.is | Almennt | 01.06.2014 | 23:05 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 1241 | Athugasemdir ( )
Gengið var frá nýjum meirihluta í Fjallabyggð í dag. Fjallabyggðarlistinn og Jafnaðarmenn í Fjallabyggð gerðu með sér samkomulag um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili.
Steinunn María Sveinsdóttir, oddviti Jafnaðarmanna, verður formaður bæjarráðs og Magnús Jónasson, oddviti F-listans, verður forseti bæjarstjórnar. Flokkarnir munu skipta jafnt með sér formennsku í nefndum og ráðum. Í framhaldinu verður leitað eftir bæjarstjóra og hann ráðinn eftir faglegum leiðum.
Athugasemdir