Opinn fundur um ferðaþjónustu á Íslandi
sksiglo.is | Almennt | 07.04.2016 | 11:17 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 312 | Athugasemdir ( )
Arion banki stendur fyrir opnum fundi um ferðaþjónustu fimmtudaginn 7. apríl frá kl. 16:30-18:30 á Hótel Sigló. Á fundinum fer Konráð S. Guðjónsson frá Greiningardeild Arion banka yfir stöðu ferðaþjónustu á Íslandi og svo mun Stefán Jökull Stefánsson, sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu í markaðsdeild bankans yfir helstu tól og tæki til markaðssetningar á netinu. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti. Skráning er á arionbanki.is. Allir velkomnir.
Athugasemdir