Pappírssala og dósasöfnun KF
Fimmtudaginn 11.febrúar munu iðkendur KF ganga í hús og selja pappír (eldhúspappír á 3.500.- og salernispappír á 4.500.-) í báðum bæjarkjörnum ásamt því að safna dósum Siglufjarðarmegin.
Allir iðkendur KF taka þátt í fjáröfluninni og munu foreldrar í 3.flokki karla og kvenna ásamt meistaraflokksleikmönnum aðstoða krakkana.
Fjáröflunin hefst kl 17:30 og eiga iðkendur og aðrir að mæta við vallarhúsið á Ólafsfirði eða við Hvanneyrarbraut 65 á Siglufirði.
Bæjarbúar tökum nú vel á móti krökkunum og styðjum starf KF.
Með kveðju, Stjórn KF
Athugasemdir