Paramót Sigló Hótels í blaki
Hið árlega Paramót Sigló Hótels í blaki fer fram Föstudaginn langa (25.mars) í íþróttahúsinu á Siglufirði. Mótið er haldið til styrktar Strandblaksvellinum á Siglufirði og er öllum opið en grunnreglurnar eru eftirfarandi:
-Pör þurfa að skrá sig til leiks (karl og kona eða kona og kona).
-Dregið verður í lið fyrir hverja hringu (þrjú pör mynda lið).
-Hver hrina er spiluð upp í 15 og nóg er að vinna með einu stigi.
-Spilaðar verða a.m.k. 8 hrinur en fjöldi hrina fer eftir fjölda para.
Verðlaun verða veitt efsta parinu og svo verða ýmsir happdrættisvinningar dregnir út.
Mótið hefst kl 16:00 en hægt er að mæta í upphitun kl 15:30, og því lýkur um kl 18 (gríðarlega mikilvægt að þátttakendur séu mættir tímanlega). Kostnaður pr par er 5000.- og greiðist það á mótsstað en áður en mótið hefst. Pör eru vinsamlegast beðin um að senda skráningu á mótsstjóra (oskar@mtr.is eða 848-6726) sem fyrst þar sem einungis 36 pör geta tekið þátt á mótinu.
Nú er um að gera að taka frá nokkrar klukkustundir föstudaginn langa og mæta með góða skapið í íþróttahúsið og njóta góðrar samverustundar og um leið styrkja gott málefni.
Athugasemdir