Ráðning bæjarstjóra Fjallabyggðar. Nýtt
sksiglo.is | Almennt | 04.07.2014 | 14:03 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 418 | Athugasemdir ( )
Fjallabyggð 4.júlí 2014
Á bæjarstjórnarfundi í gær, þann
3.júlí 2014, var samþykkt samhljóða að endurráða Sigurð Val Ásbjarnarson sem bæjarstjóra í Fjallabyggð til næstu
fjögurra ára. Ljóst er að Sigurður Valur býr yfir mikilli reynslu og þekkingu sem mikilvæg er í þeim fjölmörgu verkefnum sem
að sveitarfélaginu snúa.
Forseta bæjarstjórnar og formanni
bæjarráðs er falið að gera ráðningarsamning við bæjarstjóra sem lagður verður fyrir bæjarráð og síðar
staðfestur af bæjarstjórn.
Við væntum þess að
bæjarstjóri og bæjarstjórn eigi farsælt samstarf íbúum sveitarfélagsins til heilla.
Magnús Jónasson forseti
bæjarstjórnar og Steinunn María Sveinsdóttir formaður bæjarráðs.
Fjallabyggð 4.júlí 2014
Frá Sigurði Val
Ásbjarnarsyni:
Bæjarstjóri þakkar traust
bæjarstjórnar og mun áfram leggja áherslu á opna stjórnsýslu með hag bæjarbúa að leiðarljósi. Í upphafi
þessa kjörtímabils vil ég þakka góðar árnaðaróskir. Það er vissulega ætlun bæjarstjórnar og
bæjarstjóra að koma góðum málum til framkvæmda á hverjum tíma.
Lögbundin verkefni og velferðarmál
verða alltaf áhersluþáttur hverrar bæjarstjórnar. Á kjörtímabilinu 2014 – 2018 er og ætlunin að leggja mun meiri áherslu
á umhverfismál en þar fara áhugamál bæjarbúa, bæjarstjórnar og bæjarstjóra saman. Bæjarkjarnarnir í
Ólafsfirði og á Siglufirði búa yfir sterkri og viðburðarríkri sögu. Það er mitt mat að bæjarfélagið Fjallabyggð
standi frammi fyrir mikilli áskorun er varðar mörg mál og vil ég nefna menningar- og umhverfismál sérstaklega. Leggjum því áherslu
á okkar nær umhverfi og gott mannlíf á næstu árum. Með samtakamætti mótum við nýja tíma, sögu sem við
verðumsíðar stolt af.
Sigurður Valur Ásbjarnarson
bæjarstjóri Fjallabyggðar
Athugasemdir