Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg (SSS)
sksiglo.is | Almennt | 11.09.2014 | 19:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 588 | Athugasemdir ( )
Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg (SSS) fer í
æfingaferð til Austurríkis í byrjun árs 2015.
Iðkendur félagsins munu af því tilefni efna til
fjáröflunar dagana 12.-21. september næstkomandi og ganga í hús hér á Siglufirði og selja Fyrstu hjálpar töskur.
Þær eru CE merktar ásamt því að vera með
þýska DIN gæðastaðlinn. Læknar hafa valið í þær og eru þær fluttar inn með leyfi Landlæknisembættisins.
Um er að ræða minni tösku sem kostar 1.000 kr. og er tilvalið að hafa
í öðrum töskum, s.s. skólastösku, sundtösku og handtösku. Taskan inniheldur plástra, sárabindi, grisju, einnota hanska,
sótthreinsandi blautþurrkur, sápublautþurrkur, límband og eyrnapinna.
Stærri taskan kostar 2.000 kr. og er kjörin í bílinn, fjargöngur og styttri
fjallaferðir þar sem hún er með mittisbelti. Hún inniheldur allt það sama og minni taskan og auki auk þrihyrndan fatla, hitateppi, töng og
skæri.
Töskurnar eru tilvalda til jólagjafa og annarra tækifærisgjafa.
Athugasemdir