Strandblaksmóti Rauðku hefst á sunnudag
Mótsstjórn hefur tekið þá ákvörðun að færa mótið til sunnudagsins 2.ágúst vegna hagstæðrar veðurspár. Mótið mun hefjast kl 11:00 og þátttökugjaldið er 5.000.- pr lið (2 saman í liði). Keppt verður í karla- og kvennaflokki og verður deildarskipt hjá konunum. Karlarnir munu hefja leik kl 11:00 og konurnar ca kl 14.
Glæsilegir vinningar eru fyrir efstu sætin ásamt happdrætti þar sem allir þátttakendur geta unnið flotta vinninga.
Við hvetjum alla til að láta slag standa, skrá sig á mótið og styrkja gott málefni. Skráningu lýkur kl 16:00 laugardaginn 1.ágúst (848-6726 eða oskar@mtr.is) .
Með kveðju, Strandblaksnefnd
Athugasemdir