SÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU sunnudaginn 12. okt. 2014

SÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU sunnudaginn 12. okt. 2014 Sunnudaginn 12. okt. 2014 kl. 14.00 - 17.00 opnar Guðrún Pálína Guðmundsdóttir sýningu í Kompunni,

Fréttir

SÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU sunnudaginn 12. okt. 2014

Sunnudaginn 12. okt. 2014  kl. 14.00 - 17.00 opnar Guðrún Pálína Guðmundsdóttir sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði sem ber titilinn Norðurátt.

 

 

Guðrún Pálína Guðmundsdóttir sýnir stórt akrylmálverk á dúk (160 x 3 m) og nokkur lítil  (30 x 30 cm) olíumálverk. Guðrún Pálína var bæjarlistamaður Akureyrar 2013 og dvaldi hálft ár í Berlín og er sýningin  brot af vinnu hennar þar. 

Í málverkum sínum reynir hún að hafa alla teikningu sem einfaldasta og láta litina og kraft þeirra njóta sín sem best og áferð efnisins.

 

Hún vann að tvenns konar málverkum í Berlín, annars vegar portrettmyndir og hinsvegar einhvers konar landslagsmyndir þar sem óblandaður ilturinn flæðir um myndflötinn og blandar litatónana sjálfur, þegar hann rennur saman. 

Guðrún Pálína hefur verið starfandi myndlistarmaður að framhaldsnámi loknu í Hollandi 1989. Hún hefur verið búsett og starfandi á Akureyri síðan 1991 meðal annars sem framkvæmdastjóri Listasumars, starfrækt Gallerí + í Brekkugötu, er safnakennari við Listasafnið á Akureyri og hefur setið í stjórn Myndlistafélagsins.  þetta er hennar fyrsta sýning á Siglufirði.

 

FLÓAMARKAÐUR

Þennan sama sunnudag verður efnt til flóamarkaðs í sal Alþýðuhússins og Búðin verður opin í fyrsta sinn með litla skúlptúra og lágmyndir eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur.

 

Heitt á könnunni og léttar veitingar, allir velkomnir, en athugið að ekki er hægt að taka við greiðslukortum.

 

Allar nánari upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091

 

Menningarráð Eyþings, Fjallabyggð og Fiskbúð Siglufjarðar eru bakhjarlar Alþýðuhússins.


Athugasemdir

24.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst