Tónleikar í Alþýðuhúsinu á laugardaginn
sksiglo.is | Almennt | 14.04.2016 | 09:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 425 | Athugasemdir ( )
Laugardaginn 16. apríl kl. 20.00 verður hljómsveitin DrinniK frá Akureyri með tónleika í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. DrinniK er glænýtt tríó sem spilar frumsamda tónlist undir sígaunaáhrifum.
Hljómsveitina skipa
Andri Kristinsson: söngur, gítar, banjó
Wolfgang Lobo Sahr Saxófónn, harmónikka
Alan Mackkay: bassi
Enginn aðgangseyrir en tekið er á móti frjálsum framlögum.
Menningarrár Eyþings, Fjallabyggð, Fiskbúð Siglufjarðar og Egilssíld styðja við menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Athugasemdir