Tónskóli Fjallabyggðar, verður með opið hús á Skálarhlíð, Siglufirði föstudaginn 7. febrúar
sksiglo.is | Almennt | 06.02.2014 | 12:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 199 | Athugasemdir ( )
Innsent efni.
Tónskóli Fjallabyggðar, verður með opið hús á Skálarhlíð, Siglufirði föstudaginn 7. febrúar.
Skálarhlíð verður opin frá kl. 14.30 – 16.00 fram koma nemendur og kennarar Tónskóla Fjallabyggðar.
Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá, fjöldasöng og fjölbreytt tónlistaratriði.
Gestum verður boðið upp á vöfflur og kaffi og um að gera að kíkja á okkur, eiga góða stund með vist- og starfsfólki Skálarhlíðar og Tónskóla Fjallabyggðar.
Athugasemdir